5.8.2008 | 15:49
Smáauglýsingar
Tek að mér viðgerðir ásodastream tækjum frá áttunda áratugnum. Lofa góðri þjónustu og ef ég ekki getlagað tækið þá mun ég skaffa þér nýtt - því auðvita elska ég þig Endilega hafðu samband í síma 777-soda. Tjörvi
Keyrðir þú á fugl? Dó hann?Langar þig til að eiga hann á hillunni heima hjá þér? Bjallaðu þá í mig í síma456- gimp. Palli.
Keypti óvart þrjá púða í staðtveggja í RL vöruhúsi. Ég hef það ekki í mér að skila púðanum, því skömmin ersvo mikil. Þar sem ég er nísk þá tímdi ég ekki að setja mynd af honum en hanner reffilegur. Hann er þinn ef þú kemur og sækir. Nánari uppls. Í síma111-pudi Herta.
Ert þú iðjuleysingi semsárvantar að komast í gott uppgrip á riðguðum dalli gerðum út frá Raufarhöfn?Um er að ræða stöðu annars vélstjóra. Mannsæmandi laun í boði. Allarupplýsingar veitir Bolli, Bolli skipper í síma 889-jobb
Ef þú veist hvað varð afgarðálfinum mínum, sem býr við Merkilandi 10 Selfossi þá vinsamlegast komduhonum aftur á sinn stað án tafa. Ein pirruð.
Þarf að losa mig við átta áragamla læðu. Hún er blíð og góð en étur allt sem hún kemst í. Sjálf er ég mikilhandavinnukona og treysti mér ekki lengur að fela allt föndurdótið mitt.Hún heitir Ungfrú Hunangsbjalla Sívertsen, hún svarar kalli. Sjálf heiti ég Ugla og svara í síman 56-tistis.
31.7.2008 | 19:41
Hvert fóruð þið vinir?
Nú er maður illa svikinn....Eins og hendi væri veifað hafa allir mínir bloggvinir (moggavinir) verið teknir af mér, líklegast sendir til Abu Grai eða eitthvað... alla vega eru þeirra farnir....kannski fyrir fullt og allt...hver veit.. Nú sit ég upp með einhverja krækju-vini sem ekki eru myndskreyttir..
Ætli ég þurfi að fara að safna þeim aftur?
Eníhú...langaði bara að minna á að á morgun mun ég yfirgefa frónið og fara á útnára þess, Vestmannaeyjar. Þar mun ég djúsa með vel völdu fólki, og heyrst hefur að allir helstu skrallarar séu á leiðinni í eyjuna til að fagna saman. Ég mun að sjálfsögðu fá mér lunda og vel sveitta borgara í hinu sívinsæla matartjaldi Get ekki beðið....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.7.2008 | 13:31
Einhverntíma er allt fyrst







Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
21.7.2008 | 18:19
Fjaran
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.7.2008 | 14:16
Manst þú eftir Fimo leirnum?
Mamma mín hringdi í mig í gær og sagðist vera taka til í skápum og spurði mig hvort ég vildi ekki koma og taka það sem ég ætti. Ég fór í gengum þetta og tók slatta með mér heim. Í einhverjum kassa sá ég litlar fígúrur sem ég kannaðist nú eitthvað við....og viti menn....þetta voru litlar verur gerðar út Fimo leirnum. Megnið, ef ekki allt gerði ég heima hjá Guffa. Það var á tímabili Fimo æði þar á bæ Ég tók myndir af þessum fígúrum og ætla að smella þeim inn.


Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
8.7.2008 | 21:27
Ein sú svæsnasta falda myndavél sem ég hef á ævi minni séð!
Inni á tenglasíðunni B2 er hægt að sjá falda myndavél sem er...........ansi svæsinn! Þú getur séð hana með því að fara á þessa slóð (tengladótið ekki að virka)
http://b2.is/?sida=tengill&id=289788

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.7.2008 | 11:38
Ég held....
Að það sé eitthvað að rotna í fjörunni ekkert langt frá Hafinu Bláa.......
Alla vega er lyktin ekki góð á kafla......
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.7.2008 | 17:43
Landsmótið
Eins og áður hefur komið fram þá var ég á landsmótinu í gær og komst ekki hjá því að heyra lýsingarnar á hrossunum sem voru að keppa. Ég ætla að leyfa mér að semja nokkrar kynningar.
Fyrstur til leiks er Blær frá Skarði. Hann er undan Mókolli frá Skúfslæk. Hann situr knapinn Gústaf. Hjónin hafa lagt mikla alúð í hrossaræktina. Blær fær alveg sérstakt fóður sem er sér innflutt frá Noregi. Finnskur timburhöggsmaður sér um járninguna. Þetta er glæsilegt tölt hjá blæ og fær hann 7.5 í einkunn.
Næstan til leiks kynnum við Sörla frá Núpi. Knapinn er hinn 16 ára bráðefnilegi Jafet Gunnlaugsson. Sörli er 9 vetra gæðingur undan Hryssingi frá Búakoti. Sörli hefur tvívegis unnið til verðlauna fyrir tölt og þykir hin mesti gæðingur. Dómarar hafa gert upp hug sinn og hlýtur Sörli einkunnina 7.0 sem er mikil vonbrigði fyrir félagana.
Fífill frá Tannastöðum sá við hér. Knapinn er Ylfa Ósk og er þetta í fyrsta skiptið sem þau keppa á landsmóti. Fífill er undan Gusti frá Læk og hér sjáum við hann á brokki. Falleg sjón. Dómarar stinga saman nefjum og gefa einkunnina 8 sem er glæsileg byrjun já þessum efnilega knapa.
Þá lýkur þessari umferð. Klukkan 17:00 munum við fá á svið engan annan en stórsöngvarann Meat loaf! (hlátur heyrist) neinei......smá spaug, en Raggi Bjarna mun koma og taka nokkur vel valin lög
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.7.2008 | 22:01
,,Graðfoli,,





Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)