Færsluflokkur: Bloggar
31.7.2007 | 10:54
oooooo............en sætt
.....Fæðingin gekk vonum framar! Ryan var reyndar aðeins og seinn en Trista fyrirgaf honum það auðvita, þó svo að hann hefði gleymt að koma með sykurpúðana eins og hann lofaði. Barni og móður heilsast vel og er Ryan stoltur faðir. Ætla að reyna að ná kvöldvélinni og hitta þau. Trista er samt eitthvað hálf slöpp.....
![]() |
Fyrsta Bachelorette barnið fætt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.7.2007 | 08:42
Flugufíaskó
Það fer óstjórnlega mikið í taugarnar á mér þegar ég vakna við það að húsfluga ákveður að verða pirrandi út í hið óendanlega! Af öllum stöðum í herberginu þarf hún endilega að setjast á andlitið! Hvað er málið?!?

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.7.2007 | 14:50
31.Þáttur
Við höldu áfram í rússneska herragarðinum .
Allar þessar spurningar? Sagði Herra Fleygur um leið og hann kveikti sér í feitum vindlingi ,,Þið haldið að ég sé á eftir öllum auðæfum ykkar en þar skjátlast ykkur. Sjálfur á ég skít nóg af seðlum og skortir ekki neitt, nema tvo röska vinnumenn. Þið hafði verið undir smásjá minni í tals vert langan tíma og hef ég verið að prufa ykkur.,,
,,Um hvað ertu að tala heilabilaði maður,, gargaði Ragnheiður og leit grimmilega á Stefán sem var eitt spurningamerki í framan - ,,og hvað verður um okkur?,, spurði Stefán og kyngdi þykku munnvatni. Herra Fleygur sagðist vera með verkefni sem þau þyrftu að leysa fyrir sig. Í kjallara alþingis Íslands er kassi og í honum eru mikilvæg gögn sem þurfa að komasthans hendur.
,,Það er mjög mikilvægt að ekkert fari úrskeiðis og þarf ég að fá þennan kassa sem allra fyrst,, Ragnheiður sagðist ekki ætla að gera neitt fyrr en hún fengi að sjá framan í Herra Fleyg. Henni varð ekki af ósk sinni því þegar Herra Fleygur hafði lokið máli sínu voru þau leidd út úr herberginu og út í garð.
Fuglar sungu og þægilegur niður var frá gosbrunni sem var skammt frá hjónunum. Þau settust
á bekk. Einn af lífvörðum Herra Fleygs fylgdist með hverri hreyfingu þeirra. Eftir um 5 mín. opnaðist útidyrahurðin og út kom illa lyktandi maðurinn. Hann hélt á svartri skjalatösku og rétti hana Stefáni. Á töskunni var miði sem á stóð
,,Hér er allt sem þið þurfið í þennan leiðangur,,
,,Þetta er eitthvað sjúkt grín Stefán,, sagði Ragnheiður áður en hún bað hann um að opna töskuna. Í henni fundu þau einn nætursjónauka, táragas, reyksprengju, tvær súrefnisgrímur, tvö vegabréf og tvo vindla.
Bréfi var vafið utan um vindlana og á því stóð
,,Reykist eftir að verkefni er lokið,,
Stefán leit í vegabréfin og fór að skellihlæja. Hvað er svona fyndið! Spurði Ragnheiður ekki glöð á svip Ragnheiður mín, í þessu verkefni heitir þú Jelena Olga Júktenskæja! Stefán gat ekki hætt að hlæja og fékk að launum högg í öxlina. Ragnheiður hrifsaði vegabréfið hans Stefáns og las. ,,tjih nafnið þitt er nú heldur ekkert til að hrópa húrra fyrir, Herra Ivanov Vladiz. Stefáni fannst það skömminni skárra nafn.
Ragnheiður rótaði í töskunni og tók upp táragasið og sagðist ekki hafa hugmynd um hvernig ætti að nota þetta en sagði jafnframt að þau yrðu að sækja þennan kassa og kannski, kannski endurtók hún, mundu þau losna úr þessu dæmi.
Mun Ragnheiður óvart nota táragasið? Er Stefán á barmi taugaáfalls? Hvernig komast þau til Íslands?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
28.7.2007 | 13:06
Get ekki annað en...
Hristi höfuðið þegar ég les svona fréttir af ,,heiðurs,, morði og sjálfsmorðsárás. Að það skuli vera mögulegt að heilaþvo manneskju það mikið að hún sé viljug til þess að fremja sjálfsmorð. Að auki var þessi téða kona ófrísk! Ég á seint eða aldrei eftir að skilja hugsunarháttinn sem liggur að baki þessari, leyfi ég mér að segja, heimsku. Það að þetta skuli vera heiður fyrir fjölskyldu viðkomandi kaupi ég ekki!
![]() |
Fór úr sónar í sjálfsvígsárás |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.7.2007 | 10:54
Það er toppurinn er vera í teinóttu!
Hvað fær fólk til þess að vilja sofa í stórverslun eins og Ikea? Ljósin voru ekki einu sinni slökkt, sem ég skil ekki alveg því hvaða fávita mundi detta það í hug að brjótast inn í verslun fulla af fólki? Einnig las starfsmaður upp sögu! Meir að segja um stúlku sem lokaðist inni í Ikea! Fæ bara kjánahroll af því að lesa þetta!
Fleira var það ekki, góðar stundir

![]() |
Ókeypis gisting í verslun IKEA |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.7.2007 | 23:12
Tilkynning
Búinn að finna vegabréfið mitt..............Fleirra var það ekki...........skemmtið ykkur vel í kvöld !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.7.2007 | 18:03
Ég veit ekki með ykkur en....
........Ég væri alveg til í breika á þessar fréttir, er ekki nóg að láta vita þegar og ef hún finnst?
![]() |
Foreldrar Madeleine sæta vaxandi gagnrýni í Portúgal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.7.2007 | 15:48
Núna er ég ,,útgefinn,, höfundur :o)
...........kannski ekki í orðsins fyllstu, en litla sápan náði að rata á síður Morgunnblaðsins
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.7.2007 | 10:20
Einn HIV cocktail takk
Verst finnst mér að stór hluti af þessum smituðu hafi fengið þetta frá sjúkrahúsi í gegnum blóðgjöf! Hélt að með tækninni í dag að þetta væri bara ekki hægt, barnaskapur í mér.....
![]() |
Verjur á öll hótel í Kína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)