Get ekki annað en...

 

Hristi höfuðið þegar ég les svona fréttir af ,,heiðurs,, morði og sjálfsmorðsárás. Að það skuli vera mögulegt að heilaþvo manneskju það mikið  að hún sé viljug til þess að fremja sjálfsmorð. Að auki var þessi téða kona ófrísk! Ég á seint eða aldrei eftir að skilja hugsunarháttinn sem liggur að baki þessari, leyfi ég mér að segja, heimsku. Það að þetta skuli vera heiður fyrir fjölskyldu viðkomandi kaupi ég ekki!

P-FloralPeaceSign-Large-Tra

 


mbl.is Fór úr sónar í sjálfsvígsárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta var reyndar eiginkona eins af tilræðismönnunum sem sagði frá því að hún hefði misst fóstrið daginn sem maðurinn hennar framdi hryðjuverkin.

En varðandi svokölluð „heiðurs“morð. Ég horfði á umfjöllun um eitt slíkt hræðilegt morð í Bretlandi. Í þeirri umfjöllun var mælt með að algjörlega yrði hætt að nota orðið heiðursmorð um þetta fyrirbæri. Þetta væri glæpaverk sem ekkert ætti skylt við heiður og það virkaði nánast eins og verið væri að samþykkja verknaðinn að nota þetta óviðeigandi orð um þessa óhuggulegu glæpi.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 28.7.2007 kl. 14:05

2 Smámynd: Vignir

Sammála um að nota þetta orð ekki um þennan verknað

Vignir, 28.7.2007 kl. 14:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband