Kántrí og rólegheit

Já……Hann Valli sendi mér nokkur kántrílög í morgunn……og djöfull er þægilegt að hlusta á þetta! Núna er ég búinn að sanka að mér fullt af lögum og er núna heima og er að hlusta…

Ég fór ekki í vinnuna í morgunn, gerði heiðarlega tilraun til þess……..snéri við hjá afleggjaranum Þorlákshöfn/Rvk. Fékk nóg af að keyra í þessum snjó. Núna er verið að ryðja vegina. Sé til með þetta um hádegi hvort ég fari.Það er samt ekki beint gaman að festast á einhversstaðar á leiðinni……eða fara útaf…Hef sem betur fer ekki lent í neinum útafkeyrslum – 7 9 13…

En ég hef það annars bara mjög gott í litla kotinu mínu, fékk mér besta kaffibolla í heimi í morgun, froðan þykk og góð, fæ mér sennilega annan á eftir.Hafið góðan dag og passið ykkur þarna úti á vegum landsins og hér er eitt kántrí

lag


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Gott lag!

Ég keyrði Snorra í skólann út á Bakka í morgun..ég var að deyja í hausnum, ég þoli svo illa að keyra í dimmu og snjókomu, það fer allt í hrærigraut í hausnum. (Meira en venjulega) Ég er hins vegar að hlusta á Hjálma, nýja diskinn...fráááábær.

Rúna Guðfinnsdóttir, 15.1.2008 kl. 11:08

2 Smámynd: Vignir

Já, ég fjárfesti í honum um daginn! Frábær diskur! Búinn að hlusta oft á hann frá a til ö, ekki eitt lag sem ég ,,þarf,, að skipta yfir. Bara góður ;o)

Vignir, 15.1.2008 kl. 11:23

3 identicon

Hlustaðu á níu plötuna með Rebu Mcentire  Duets dúndur góð

Ingo (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband