12.1.2008 | 12:50
Smáauglýsingar 2
Félega eldriborgara auglýsir eftir kynlífsráðgjafa til að halda nokkur námskeið til að lífga upp á rómans og ástarlíf fyrir eldra fólk sem er að tapa neistanum.Dvalarheimilið Efri gröf í kjóasýslu.
Ef einhver, bara einhver, lumar á áramótaskaupinu frá árinu 89´væri meira en til í að kaupa/ fá að kópí það. Hægt er að senda mér rafpóst á bjugnakraekir(hjá)simnet.isPáll
Getur einhver hjálpa mér að læra á síman minn. Ég keypti mér svo flókinn GSM síma að ég bara get ekki með nokkru móti lært á hann og þarf hjálp. Ég á ekki mikið af pening er ég greiði fyrir kennslu stund einn kleinupoka af úrvals kleinum sem ég hef sjálf bakað.Ágústa Hekk sími 444-1111Lifið í lukku en ekki krukku!
Hef til sölu lítið notað fótanuddtæki. Ringo bítill notaði þetta tæki einu sinni þegar hann kom í heimsókn á litla bæinn okkar. Tækið hefur ekki verið notað síðan þá. Hef ekki kveikt á því í langan tíma en býst fastlega við að það virki. Þetta er einstakur safngripur fyrir alla bítlaáhugamenn og bítlaáhugakonur.Vil einungis sms sendingar í númerið 2346789 Tilboð óskast. Beinteinn.
Bjó til svo mikið af laufabrauði og smákökum fyrir jólin og sé ekki fram á að nokkuð af því verði étið og auglýsi það hér með til sölu. Fæst á slikk, jafnvel gefins ef komið er og sótt, hver veit nema að ég verði með heitt á könnunni. Létt spjall um daginn og veginn alltaf vel þegið.Erla 511-1234
Ég þarf svo mikið að losa mig við kolbrjálaðan blendind, Labrador og sjéffer blanda. Ég hef bara engan hemil á þessu kvikyndi. Ef enginn vill taka hann að sér .þá .þá neyðist ég til að láta svæfa hann.Ómar / 888-0000
Keypti spilastokk í Rúmfatalagernum. Ekkert merkilegt með nema að það vantar eitt spilið í stokkin, hjarta tíuna. Ég er búinn að leita út um allt heima hjá mér en ekki fjandans spilið. Ef einhver hefur rekist á stakt spil í Rúmfatalagernum á Smáratorgi má sá hafa samband í síma 888-1023Friðfinnur
Flokkur: Smáauglýsingar | Breytt s.d. kl. 12:51 | Facebook
Athugasemdir
Get eg fengið smákökurnar mér líst vel á þær
Ingo (IP-tala skráð) 12.1.2008 kl. 16:51
Hafði samband við Erlu og hún sagði að það hefði komið eldri kona og fengið allar smákökurnar, hún bætti við að það er enn eitthvað eftir af laufabrauðinu ;)
Vignir, 12.1.2008 kl. 17:19
Er fótanuddið líka selt ?
Ingo (IP-tala skráð) 12.1.2008 kl. 19:41
hef ekkert séð hjarta tíu í rúmfó, sá um daginn spaða tíuna samt, en ekki í rúmfata lagernum, hún var bara í spilastokknum mínum
Guðríður Pétursdóttir, 12.1.2008 kl. 20:10
Ingó - Ég held, svei mér þá, að fótanuddtækið sé ekki selt. Spurning um að hafa samband! Ég mindi gera það fyrr en seinna!
Vignir, 12.1.2008 kl. 21:48
Er búið að svæfa hundfjandann? Við Ragga erum að spá í smá samkeppni við hundinn hérna uppi!
Guðfinnur Þorvaldsson, 14.1.2008 kl. 08:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.