24.12.2007 | 00:52
Nú verða lesnar jólakveðjur.
Ágætu landsmenn, vinir og kunningjar. Óska ykkum öllum gleðilegrar hátíðar, nema erki óvini mínum honum Hreggviði frá Hæli Þú ert svo gott sem dauður fyrir mér!
Björn Bóndi.
Stína og Gaukur á Kópaskeri, innilegar óskir um góð jól og þakka það liðna á árinu, ps. Þið skuldið mér enn fyrir tveggjasæta sófan sem ég seldi ykkur í mars.
Tommi í Kópavogi.
Landsmenn
- Ég er öryrki og á ekki fyrir salti í grautinn. Vil þakka vori ríkisstjórn það allt saman og vona að þingmenn troði mikið af kræsingu í andlitið á sér yfir komandi hátíðir Aumingjar!
Úlfhildur Bekk kt. 1101491119
Vil senda hlýjar jólakveðjur norður í land til þeirra hjóna Jónasar og Erlu þið eruð alger dúllurassgöt (þulur ræskir sig)
Olga frá Rauðalæk
Sveittar jóla og hátíðakveðjur til félaga minni í bandinu Teygjutvist, þið eru hetjur strákar!
Júlli Kempa! Yfir og út!
Berti og Berta (þulur gerir stutta þögn) vilja óska íbúum Fnjóskadals og nærsveitungum innilegrar jólakveðju og vona að allir hafi það gott yfir hátíðirnar.
Kjörbúðin Tryggvakjör óskar viðskiptavinum sýnum góðr jóla og þakkar viðskiptin á árinu sem er að líða, ps Allar vörurnar í búðinni voru allar útrunnar fyrir jólin.
Tryggvi og frú. Farin til Spánar.
Nú verður gert stutt hlé að lestri.
Athugasemdir
sendi öllum heima á fróni og öllum í kexverksmiðjunni fróni jóla og níárskveðjur.
ingo (IP-tala skráð) 25.12.2007 kl. 22:25
Gleðileg jól kæri bloggvinur
P.S. Heyrði engar svona skemmtilegar jólakveðjur í útvarpinu á Þorláksmessu.
Brynja Hjaltadóttir, 25.12.2007 kl. 23:53
haha jólakveðjur til þín
og pakki á síðunni minni
Guðríður Pétursdóttir, 27.12.2007 kl. 13:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.