Hvers vegna eru menn ekki með veiðihár eins og mörg önnur dýr?

Já, í einhverju kasti ákvað ég að spurja þessara spurningar á Vísindavefnum. Þar sem ég vildi ekki notast við mitt eigið nafn notaði ég dulnefni. En þeir hjá Vísindavefnum svöruðu spurningunni minn og hér er svarið:

Fjölmargar spendýrategundir hafa veiðihár, til dæmis velflestar tegundir af ættinni Carnivora (rándýr) eins og selir, hundar, kattardýr svo og öll smærri rándýr eins og þvottabirnir, minkar og víslur. Spendýr af ættinni Rodentia (nagdýr) eru einnig með veiðihár.

Segja má að veiðihár spendýranna gegni nokkurn veginn sama hlutverki og fálmarar skordýra og krabbadýra. Veiðihárin auka nefnilega næmni þeirra gagnvart umhverfinu við aðstæður þar sem er takmarkað útsýni eins og í skógi, kjarrlendi eða sjó. Þau gera dýrunum kleift að læðast og fara hljóðlega um til dæmis þegar þau eru að nálgast bráð. Veiðihárin eru staðsett á nokkrum stöðum á andliti þessara dýra eins og fyrir ofan munnvik, á kinnum og fyrir ofan augu, meðal annars á köttum.

Nýlegar rannsóknir sem gerðar voru á landselum (lat. Phoca vitulina) hafa sýnt fram á að veiðihár sela eru næm fyrir straumum sem fiskar gefa frá sér þegar þeir hreyfa sig í vatninu, en þeir eru helsta fæða selanna. Selir nota veiðihárin því á svipaðan hátt og höfrungar nota hljóðsjá (sónar) þegar þeir veiða sér til matar.

Skyldar rannsóknir sem gerðar hafa verið á útselum (l. Halichoerus grypus) við Bretlandseyjar sýna að veiðihárin eru mikilvægari við fæðuöflunina en sjónin. Í sjónum er oft lítil birta og því erfitt fyrir selina að styðjast eingöngu við sjón þegar þeir leita sér ætis.

Dýr þróa með sér alls konar aðferðir við veiðar. Mörg önnur skynfæri gegna mikilvægu hlutverki í þessari lífsbaráttu. Veiðihár hafa ekki þróast meðal prímata eða annarra apa vegna þess að þeir hafa afar vel þróaða sjón og mikila greind sem hefur gegnt lykilhlutverki í fæðuöflun þeirra. Þessi eiginleikar hafa verið meginstoðin í allri hinni miklu velgengni sem apar hafa notið á undanförnum 30 miljónum ára.

Mæli með að þið skoðið þennan vef, það eru margar skemmtilegar spurningar þarna og ótrúlegt hvað þeir geta svarað mörgum spurningum sem eru ,,heimskulegar,, eins og mín.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband