2.2.2010 | 22:01
Smáauglýsingar
Saumaklúbbur í breiðholtinu óskar eftir nafni á klúbbinn. Vegleg verðlaun eru í boði en þau er heitur brauðréttur að hætti Hugrúnar. Við viljum ekki klisjunöfn eins og : saumspretturnar, fingurbjargirnar, prjónasystur, lopagellurnar eða Tvinnakeflin. Tillögur sendist á netfangið saumo@saumur.is
Nennir einhver að kenna mér að búa til páskaegg? Hjálparkokkurinn verður að útvega eftirfarandi; súkkulaði og nammi. - á engan pening.....get ekki borgað fyrir hjálpina. Svör sendist á netfangið: onebrokebitch@hotmail.com kveðja Petrína.
Er að leita að afar sérstökum áfelgum. Sá þær á bíl fyrir vestan síðasta sumar. Þær eru 5 arma með stórum teningi í miðjunni. Ef þú lumar á þessum dýrgrip þá máttu endilega senda mér sms í númerið 88-vírdó.
Kökugerðameistari óskar eftir að ráða nema. Kröfur eru eftirfarandi; má ekki éta deig, snyrtimennska í fyrirrúmi, stundvísi, hatur á Davíð Oddssyni, óstjórnlega ást á súkkulaði og fima stöðuga fingur.
umsókn sendist á donabakarinni@bakstur.is
Flokkur: Smáauglýsingar | Facebook
Athugasemdir
gáðu hvort að onebrokebitch sé laust.. gætir örugglega fengið @simnet.is ;)
Jenni (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 22:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.