Færsluflokkur: Dægurmál
2.10.2008 | 14:53
Krónan rís upp úr öskunni
_________________________
-Þær fréttir voru að berast að krónan styrktist við opnun markaðarins í morgun um 30%. Davíð Oddson seðlabankastjóri sagði í samtali við blaðið að Seðlabankinn hyggist lækka stýrivexti niður í 7% til að byrja með en stefnan tekin á enn meiri lækkun á næstu dögum. Evran fór úr 152.311 niður í 83 kr. og Dollari niður í 69 kr.
-Miklar vonir eru bundnar við sölu hlut ríkisins í Glitni, og er búið að áælt að hluti af hagnaðinum verði nýttur í að efla þjónustu við aldraða. Þó hefur enn ekki verið ákveðið hvenær hluturinn verður seldur.
-Kaupþing tilkynnti einnig í morgun lækkun á vöxtum húsnæðislána um 2,3 % og bjóða nú fyrst í dag upp á 100% lán á vaxta fyrstu 2 árin.
_________________________
i wish........
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
23.7.2008 | 13:31
Einhverntíma er allt fyrst
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
8.7.2008 | 11:38
Ég held....
Að það sé eitthvað að rotna í fjörunni ekkert langt frá Hafinu Bláa.......
Alla vega er lyktin ekki góð á kafla......
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.7.2008 | 22:01
,,Graðfoli,,
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.6.2008 | 17:35
Stöff
Og það er brjálað að gera hjá mér í vinnunni.........
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.6.2008 | 15:33
Blómlegur póstkassi...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
10.5.2008 | 20:51
Ég er að reyna að breyta mér í kvaðratrótina af þremur
Þetta er nú búinn að vera meiri dagurinn! Vaknaði við símhringingu frá Hvítahúsinu. Bush var eitthvað að vandræðast með málin í Írak og vildi fá annað álit, sagðist ekki treysta mönnunum á ofurlaununum sem ekkert gagn gerðu. Ég sagði honum bara að kalla heim nokkur hundruð hermenn. Fór svo aftur að sofa í sirka klukkutíma.
Síminn hringdi í annað sinn. Á hinum enda línunnar var Amy Winehouse. Hún var skælandi í símanum og sagðist hafa týnd debetkortinu sínu. Eftir smá spjall varð hún himin lifandi því hún fann debetkortið innan á brjóstahaldaranum sínum. Hún þakkaði mér fyrir spjallið og skellti á.
Eftir símtalið við Amy gat ég ómögulega haldið áfram að sofa. Olga, pólska háskípið, kom snemma. Eins og venjulega byrjar hún á því að vaska upp og fara út með ruslið. Hún mundaði ryksuguna af alúð. Í morgun var hún extra snögg að þessu öllu saman. Ég tippsaði hana ríflega.
Klukkan hálf eitt átti ég símafund með Gordon Brown. Hann hafði lítið að segja, kvartaði undan lélega kokkinum sem hann er með. Hann heldur líka að heimilishjálpin sé að stela smokkunum hans og selja á Ebay.Fundurinn varði einungis í 15.mín.
Pósturinn bankaði upp klukkan þrjú. Hann rétti mér fimm bréf, merkt Topp síkrit. Í þeim voru fjögur handrit af kvikmyndum sem mér stendur til boða að leika í og ein auglýsing, Armani að auglýsa nýja símann sinn, á víst að leika á móti Heidi Klum. Fljótt á litið líst mér ekkert á þetta, þó að Stíven spílberg sé að leikstýra einni þeirra. Ég sendi Stíven sms og sagðist ætla að hugsa málið. Auglýsingin bókaði ég fyrir sirka hálftíma.
Ég á von á málverki í dag, sem ég keypti á uppboði í síðustu viku í gengum síma. Uppboðið var í London. Ég átti hæsta boðið í málverkið Ópið. Borgaði litla tvo milljarða fyrir það. Verkið á eftir að sóma sér vel beint fyrir ofan pissuskálina inni á baðherbergi.
Núna má ég ekki vera að þessu bloggeríi því inn var að koma (og þetta er algert leyndarmál!) Angelina jolie og brad pitt. Og viti menn, með allan krakka skarann! vúbbdídú!
heyri í ykkur síðar!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2008 | 16:11
Jæja, nú hefur þú legið hér í 50 ár, nú er komið að mér!
Dægurmál | Breytt 23.4.2008 kl. 07:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.4.2008 | 17:50
Stokkseyrarfjara
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)