Færsluflokkur: Bloggar
2.11.2007 | 11:04
Árinni kennir illur ræðari - Uppruni
Nú........uppruni þessa orðs er á huldu en sagan segir að Loftur Sæland var eitt sinn á siglingu yfir Breiðafjörð og lent í skíta brælu. Var hann á litlum árabát nokkrum sem hann skýrði í höfuðið á hundi sínum, Prófasti. Var Loftur á leið í brúðkaup frænda síns og var orðinn heldur seinn. Ákvað hann að herða róðurinn en vanmat um leið styrkleika árinnar og brotnaði hún fyrir miðju og blaðkan sökk í sæ. Loftur bölsótaðist lengi og bölvaði árinni niður til helvítis og lofaði sjálfum sér að hann færi aldrei aftur á sjó í árabáti sínum. Þurfti hann því að notast við eina ár það sem eftir lifið ferðarinn og kom seint í brúðkaupið.
Bloggar | Breytt 3.11.2007 kl. 00:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.10.2007 | 11:16
Fæstékki-um gömlu partítjónin...
Hafið góðan sunnudag lömbin mín
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.10.2007 | 14:29
Hvað ætlar þú að hafa í kvöldmatinn í kvöld?
Sjálfur mun ég nú ekki hella mér út í neina eldamennsku en ég var að vafra um á veraldarvefnum og fann ágætis síðu matseld.is - Á henni má finna fullt af girnilegum réttum, forréttum, aðalréttum og auðvita eftirréttum. Ætli það endi ekki hjá mér í kvöld að ég fari á KFC, eða eins og einn vinur minn mismælti sig og sagði ,,Ken frökki tjæ,,
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.10.2007 | 12:44
,,Ég hélt þú værir gína,,!
Var í sakleysi mínu að að tengja 3G netkort í versluninni. Stóð bara og var salla rólegur þegar ég heyri allt í einu frá konu sem gekk framhjá og sá mig hreyfast.
,,Ég hélt þú værir gína,,!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
19.10.2007 | 15:12
Enn og aftur.........
Gleymdi ég gemsanum mínum heima. Þetta er í annað skiptið sem það gerist. Það er nú ekki erfitt fyrir mig að koma mér í samband við umheiminn en ég er að hugsa um að vera bara sambandslaus í dag, það er svolítið þægilegt af og til. Ef að þið þurfið að ná í mig er ég alltaf á msn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.10.2007 | 00:28
Fundurinn
Uppi á háalofti var kassi. Þetta var stór og mikill trékassi sem Silvía litla vissi að væri til. Alla tíð hafði henni verið bannað að fara upp á háaloft því þar leyndust hættur og kassinn væri stórvarasamur.
Fjölskylda Silvíu bjó í herragarði rétt fyrir utan Lundúnir. Þau höfðu fengið hann í arf frá frænku þeirra Betty Brown sem alla tíð hafði verið sérvitur. Gekk sú saga um hverfið að hún hefði verið göldrótt og hafði sankað að sér froskum, átti víst alveg nokkra tugi sem hún geymdi í risavöxnum kjallara herragarðsins.
Eftir að hún fell frá var öllum froskunum fargað, nema einum, Silvía fékk að eiga hann. Froskurinn var eini vinur hennar og það besta sem hann fékk að borða voru pönnukökur og rúsínur.
Þar sem herragarðurinn var úr alfaraleið var Silvía oft ein, því ekki átti hún systkini til að leika sér við. Froskurinn, sem hún nefndi Tryggvi, var hennar eini félagsskapur, fyrir utan barnfóstruna sem henni líka illa við vegna þess hve ströng hún var.
Í garðinum, sem var risa stór, var mikið völundarhús. Þar lék Silvía sér oft og gat ratað um það allt. En einn daginn þegar hún var að leik sá hún svolítið sem hún hafði ekki tekið eftir áður. Undir einum trjárvegg sá hún glytta í hlera. Hún leit í kringum sig og setti Tryggva í vasann á kápunni sinni.
Lítill spotti var bundinn við hanka sem Silvía togaði í. Viti menn,helrinn opnaðist. Gamall tréstigi lá niður á botninn. Silvía þorði ekki að fara niður og lokaði hleranum. Forvitnin var hins vegar svo mikil að hún ákvað að fara næsta dag þarna niður og skoða. Henni gekk erfiðlega að festa svefn.
Eld snemma vaknaði hún spennti og dreif sig út í garð. Tryggvi fékk að vera heima í þetta skiptið. Silvía mundi nákvæmlega hvar hún hafði fundið hleran deginum áður og gekk beint að honum. Hjartað hamaðist í brjósti hennar og hún opnaði og fór niður.
Til allrar hamingju tók hún með sér vasaljós og eina upprúllaða pönnuköku í nesti því hún sá að það var dimmt þarna og langur gangur framundan. Lyktin á ganginum minnti hana á hlauplykt. Hún fann að hún steig í bleytu og lísti niður á gólfið. Sá hún ekki betur en hún stæði í sólberjasafapolli. Sá safi var hennar uppáhalds og hún fór að öðrum polli og fékk sér sopa. Hún hugsaði til Tryggva sem var heima, hann hefði örugglega vilja fá að smakka líka.
Hún hélt áfram ganginum og gekk fram hjá mörgum súlum sem virtustu vera sleikjóar.Eftir langan gang sá hún stiga sem lá upp á við. Hún byrjaði að klifra og klifra og klifra. Hún var orðin mjög þreytt en sá svo ljóstýru við endan sem herti hana upp. Spennar var mikil í þann mund sem hún opnaði hlerann. Silvía stakk höfðinu upp um gatið og kannaðist ekki við sig. Ekki strax allavega. Hún stóð upp og sá að hún var í húsi. Gekk að glugga sem hún sá og leit út. Við henni blasti völundarhúsið hennar.
Silvía var komin upp á háaloft. Staðinn sem hún mátti alls ekki fara á. Hún varð pínu skelkuð en leit í kringum sig og sá fullt af dóti, þar á meðal mikið af videospólum og dúkkum sem hún var hætt að nota. Svo sá hún svolítið sem fékk hjartað til að slá hraðar. Það var kassinn! Silvía gekk hægt að honum og sá að hann var ólælstur.
Varlega lyfti hún upp lokinu og leit ofan í kassann. Vonbrigðin voru mikil þegar hún opnaði og sá hvða var í kassanum. Í var bara einhver tebolli. Hvað átti hún að gera við tebolla. Hún virti hann fyrir sér í smástund og sá þá allt í einu að í botni bollans byrtist mynd af frænku sinni sem var látin. Betty sagði að þessi bolli byggi yfir gríðarlegum mætti og hann yrði að fara vel með.
Silvía lofaði því að gæta hanns vel og setti hann í boka sem hún hafi meðferðis. Hún fór svo sömu leið til baka og upp stigan í völundarhúsinu. Á leiðinni heim flýtti hún sér svo mikið að bollinn datt úr pokanum hennar án þess að hún tæki eftir því. Þegar hún kom upp í herbergið sitt fór hún strax að gramsa í pokanum og fann hvergi bollann. Fór út að leita en fann hann ekki, alls ekki.
Árin liðu og hún óx úr grasi og eignaðist dóttur sem hún skírði í höfuðið á móður sinni. Einn dag voru þær mæðgur að leik í völundarhúsinu þegar Brynja kallar á mömmu sína og segir henni að koma því hún hafði fundið svolítið. Silvía gekk að henni og sá á hverju dóttir sín héldi, það var bollinn. Silvía sagði að þenna bolla skyldi hún geyma og gefa henni þegar hún yrði stór.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.10.2007 | 21:30
Ferðasaga
Já, í dag fór ég, ásamt Guðrúnu, í lítinn bíltúr. Í fyrstu var ég búinn að ákveða að fara hring, byrja í Hveragerði og taka svo Þorlákshöfn, Eyrarbakka og loks Stokkeyri. Þau plön fuku út um gluggan og í staðinn forum við Krísuvíkurleiðina til Grindarvíkur.
Við fórum í þeirri meiningu að það væri búið að malbika bróðurpart leiðarinnar. Svo reyndist ekki vera og var þessi vegur mesta þvottabretti. Mikill hossingur var og geislaspilarinn í bílnum var sífellt að stoppa. En þar sem við eru íslendingar hlóum við bara að þessu.
Nú, við stoppuðum nokkrum sinnum á leiðinni og tókum myndir. Stoppuðum í Selvoginum og tókum myndir af pulsuvagninum sem er líka verslun sem selur handverk af ýmsum toga. Virtist vera lokaður Þegar okkur bar að garði. Við forum að Strandakirkju og tókum myndir af henni. Ég rak augun þegar við vorum að fara að bílnum í plötu sem búið var að setja á grunn kirkjunnar, set mynd afþví hérna og getið þið lesið það sem á henni stóð.
Strandakirkja var ekki eina kirkjan sem varð á leið okkar því við stoppuðum einnig hjá Krísuvíkurkirkju sem var víst byggð 1837 og er nú í eigu þjóminjasafnsinns. Þetta er með þeim minnstu kirkjum sem ég hef séð. Ég prufaði að taka í húninn og opna, átti ekki von á að geta það, en viti menn, hurðin opnaðist. Að vísu ekki alveg inn en fyrir innan hurðina var önnur hurð og í skrárgati hennar var lykill. Var ekkert að snúa honum neitt og lokaði aftur. Þorði ekki að fara inn........
Borgarhóll var næsti stoppistaður. Þar tókum við myndir af ótal vörðum sem fólk hefur verið að hlaða í gegnum árin. Tek það fram að við forum ekki út úr bílnum en tókum myndir. Sá svo eftir því seinna að hafa ekki sett eins og einn stein í vörðu. En hvað um það.
Síðasti áningarstaðurinn var svo Grindarvík. Þar þræddum við allar göturnar og skoðuðum húsin og meðal annars húsið sem að Guðrún bjó í þegar hún var ca. 2 ára. Við komustu að því að Grindarvík er ekki beint mest lifandi staðurinn á landinu og stoppuðum í sjoppu þar sem ég keypti mér kók og brenni.
Ég mæli með því að þú farir þessa leið því það er mjög flott landslagið þó svo að vegurinn sé ekki tipp top. Nú koma svipmyndir frá ferðini.
Krísuvíkurkirkja
Spúkí
Pulsuvagn / handverkshús
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2007 | 14:29
Löðrungaður af laufblaði
Já, allt er hægt. Var í sakleysi mínu á röltinu í gær. Mikið rok var og lét það öllum illum látum. Þar sem það er komið haust eru tré farin að fella litlu laufin sín. Allt gott og blessað með það...jájá......
Nema hvað..ég var , eins og áður sagði, á röltinu og fékk eitt stk. laufblað á blússandi siglingu beint i smettið á mér.
Langaði bara að deila þessu með ykkur. Hafið góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.10.2007 | 16:08
Í skrítnu skapi
Er í skrítnu skapi núna þannig að ég ætla að skella þessu myndbandi inn til að ,,hressa,, mig upp. Finnst þetta líka viðeigandi miðað við hvernig veðrið hefur verið síðustu daga og vikur...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)