18.3.2008 | 17:31
Smáauglýsingar
Á mínum yngri árum var ég mikið partýljón. Ég fór á alla þá tónleika sem haldnir voru. Sérstaklega man ég eftir þegar ég fór á tónleika með Simply red. Ég fékk það tækifæri að láta til mynd af mér og söngvaranum. Ég var í annarlegu ástandi og get ekki fundið þessa mynd! Ef að einhver veit hvar þessi mynd er niðurkomin þá má sá hin sami hafa samband. Ein desperet nývöknuð úr kóma. Svar sendist á despo(hjá)despo.desp
Ég á hamstra-par....ekkert merkilegt með það svosem...en þetta er bara svo helvíti gratt þetta lið. Hef enga stjórn á þessu og húsið fullt af litlum loðnum og krúttaralegum hömstrum. Endilega hafðu samband ef þig vantar hamstur, þú manst, þeir eru hryllilega miklar dúllur. Svar sendist merkt hamstrafrú í neyð.
Um daginn..þá keypti ég mér í Ikea par. Salt og pipar par. Voðalega vingjarnlegt par. Þetta er sumsé hani og hæna. Ég er ansi hræddur um að ég hafi hent hænunni en er ekki viss. Ef þú hefur fundið einmanna hana þætti mér vænt um að þú mundir senda mér hann í pósti.
Flokkur: Smáauglýsingar | Facebook
Athugasemdir
skil ekki síðustu auglýsinguna...
ertu bæði hænu og hanalaus
Guðríður Pétursdóttir, 18.3.2008 kl. 17:34
nei, bara hanalaus
Vignir, 18.3.2008 kl. 18:01
en þú hentir hænunni..? hvert fór haninn þá
Guðríður Pétursdóttir, 21.3.2008 kl. 12:49
....................
Vignir, 22.3.2008 kl. 14:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.