Smáauglýsingar

 

Á mínum yngri árum var ég mikið partýljón. Ég fór á alla þá tónleika sem haldnir voru. Sérstaklega man ég eftir þegar ég fór á tónleika með Simply red. Ég fékk það tækifæri að láta til mynd af mér og söngvaranum. Ég var í annarlegu ástandi og get ekki fundið þessa mynd! Ef að einhver veit hvar þessi mynd er niðurkomin þá má sá hin sami hafa samband. Ein desperet nývöknuð úr kóma. Svar sendist á despo(hjá)despo.desp

Ég á hamstra-par....ekkert merkilegt með það svosem...en þetta er bara svo helvíti gratt þetta lið. Hef enga stjórn á þessu og húsið fullt af litlum loðnum og krúttaralegum hömstrum. Endilega hafðu samband ef þig vantar hamstur, þú manst, þeir eru hryllilega miklar dúllur.    Svar sendist merkt hamstrafrú í neyð.

Um daginn..þá keypti ég mér í Ikea par. Salt og pipar par. Voðalega vingjarnlegt par. Þetta er sumsé hani og hæna. Ég er ansi hræddur um að ég hafi hent hænunni en er ekki viss. Ef þú hefur fundið einmanna hana þætti mér vænt um að þú mundir senda mér hann í pósti.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

skil ekki síðustu auglýsinguna...

ertu bæði hænu og hanalaus

Guðríður Pétursdóttir, 18.3.2008 kl. 17:34

2 Smámynd: Vignir

nei, bara hanalaus

Vignir, 18.3.2008 kl. 18:01

3 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

en þú hentir hænunni..? hvert fór haninn þá

Guðríður Pétursdóttir, 21.3.2008 kl. 12:49

4 Smámynd: Vignir

....................

Vignir, 22.3.2008 kl. 14:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband