21.9.2007 | 20:41
dýr er sopinn......
Ég var rændur um hábjartan dag - í dag.......Ég þurfti að taka bensín á leiðinni í vinnuna í dag. Bensínið tók á sofunni sem kennd er við lítið kaffi. Af illri nauðsyn dældi ég á bílinn minn fyrir 1500. Man nú ekki alveg hvað það voru margir lítrar - nenni ekki að reykna það en fyrir skitinn líter þurfti ég að punga út 133 krónum! Þetta þykir mér vera rán!
Athugasemdir
Athugaðu að þú hefur fengið þér þjónustu, það er dýrast, þú hefðir þurft að borga 4-5 kr. minna á ltr ef þú dælir sjálfur. 133 kr. er verð fyrir þjónustu ef þú hefur ekki tekið eftir því. Ódýrasta eldsneytið er Orkan, svo vendu þig á að dæla sjálfur þá sparar þú fleiri krónur.
Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 20:49
ég dæli alltaf sjálfur og gat hvergi séð á dælunni að um fulla þjónustu væri að ræða....þetta var dæla númer tvö....með þjónustu eða án finnst mér þetta samt fáránlega dýrt......
Vignir, 21.9.2007 kl. 21:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.