28.8.2008 | 14:13
Kengúra og kók
Alltaf er maður að bragða eitthvað nýtt nú til dags....Fór í gær á Vegamót með vinnufélögum. Matseðilinn góður og frumlegur, rak augun í kengúruna (grilluð) sem er borin fram með udon-núðlusalati. Efins pantaði ég mér það. Við þurftum ekki að bíða lengi eftir matnum. Skammturinn var passlega mikill og framsetningin flott.
Svo var að bragða á þessu - Ég bjóst við einhverju skrýtnu en þetta er eitt það besta kjöt sem ég hef fengið! Kjötið var hæfilega grillað og mjög meyrt. Ég hugsaði mikið um hvaða kjöti þetta var líkast en ég fann ekki neitt....einstakt bragð. Gott bragð! Þessu var svo skolað niður með kóki.
Þannig að...núna hefur maður bragðað bæði kengúru og kók, og kjamma og kók
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Athugasemdir
Ég hélt að kengúrur væru ekki étnar? Ég smakkaði strút um daginn, óætur, mjög líklega vegna ómögulegrar eldamennsku
Ég held ég vilji ekki borða kengúrur...nei takk...ekki eins og er...
Mange hilsener.
Rúna Guðfinnsdóttir, 28.8.2008 kl. 15:11
Hún er mjög bragðgóð, þess virðri að prufa
Vignir, 28.8.2008 kl. 15:18
Var þetta Skippý?
Brynja Hjaltadóttir, 31.8.2008 kl. 14:09
Strútar? Kengúrur? Heimur versnandi fer
Guðfinnur Þorvaldsson, 1.9.2008 kl. 03:05
það er nú gott að þetta bragðast vel en þetta lítur ekki vel út.
Ragnhildur Pálsdóttir, 1.9.2008 kl. 12:13
oj vignir...
akkuru fékkstu þér ekki bjór?
hugrún (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 19:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.