15.11.2007 | 18:19
Lögregludagbók
Lögregluembættið í Surtsey.
15.11.07
Ekki mikið um mannaferðir, frekar en fyrri daginn. Allt með kyrrum kjörum. Einstaka mávur drap niður fæti og skildi eftir sig drit, þakkaði ekki fyrir sig. Bátur lögreglunnar var ekki í besta ásigkomulagi og var sífellt að drepa á sér, miðstöðin léleg. Vakthafandi lögreglumaður skalf eins og lauf í vindi við löggæslustörf. Varð ekki var við mannaferðir í eynni, enda ekki leyfilegt. Bölvaði hann vinnu sinni í sand og ösku.´
Klukkan 18:00 sigldi lítil trilla framhjá eynni, um borð virtist vera mikill gleðskapur og vín var haft um hönd. Þrír kvenmenn sáust hanga yfir borðstokkin í annarlegu ástandi. Ekki er vitað hvað þær drukkur mikið af áfengi, en talið er það hafi verið umtalsvert.
Klukkan 21:00 var vakthafandi lögreglumaður var við stjörnuhrap. Óskaði hann sér að fá nýja og betri vinnu.
Fleira taldist ekki til tíðinda þann daginn.
Flokkur: Lögregludagbók | Facebook
Athugasemdir
Góður
Jónína Dúadóttir, 15.11.2007 kl. 18:37
fokkin shnilld! vona að það gangi allt í haginn hjá söguhetjunni okkar :)
Guðrún Helga Guðmundsdóttir, 15.11.2007 kl. 18:41
Takk takk
Vignir, 15.11.2007 kl. 18:42
Næs að vera í löggunni í Surtsey. Eg þangað.
Brúsi (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 19:40
oohh ég vona svo innilega að óskin hans rætist... keeping my fingers crossed
Guðríður Pétursdóttir, 15.11.2007 kl. 21:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.