6.10.2007 | 14:29
Löðrungaður af laufblaði
Já, allt er hægt. Var í sakleysi mínu á röltinu í gær. Mikið rok var og lét það öllum illum látum. Þar sem það er komið haust eru tré farin að fella litlu laufin sín. Allt gott og blessað með það...jájá......
Nema hvað..ég var , eins og áður sagði, á röltinu og fékk eitt stk. laufblað á blússandi siglingu beint i smettið á mér.
Langaði bara að deila þessu með ykkur. Hafið góðan dag.
Athugasemdir
þarna skellti ég uppúr
Guðríður Pétursdóttir, 6.10.2007 kl. 23:57
já, ég lendi í svo geðveikum hlutum....... ;o)
Vignir, 7.10.2007 kl. 00:04
heldur betur
Guðríður Pétursdóttir, 7.10.2007 kl. 22:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.