15.5.2007 | 12:29
Það styttist í sumarfrí
Í fyrsta skipti á ævi minni fæ ég sumarfrí á launum. Þvílíkur munaður! Á móti kemur að orlofið sem að ég fæ er nú ekki upp á marga fiska en...........ég er búinn að vera mjög duglegur að leggja fyrir í hverjum mánuði er kominn með dágóðan sjóð fyrir litlu utanlandsferðina mína sem farin verður í ágúst. Get ekki beðið eftir að komast í þetta hlýja og milda loftslag sem er á Costa del sol! Danski veitingastaðurinn býður spenntur eftir okkur og tilfinningin er gangkvæm......snilldar matur þar á bæ og þjónustan er góð.
Hef þetta ekki lengra að sinni, á örugglega eftir að grýta inn fleiri færslum í dag.
Þakka gott hljóð
Athugasemdir
já ég er nokkuð ánægð með það líka, lágt og seiðandi, alveg ágætis hljóð
Guðríður Pétursdóttir, 15.5.2007 kl. 21:10
Gott hjá þér Vignir. Méð hverjum ferðu??
Rúna Guðfinnsdóttir, 15.5.2007 kl. 21:50
Sko.........það eru Addi,Palli og Bergþóra.....nei ég segi nú bara svona, við erum að fara: Steini og Linda, Biggi, Gunnar Valberg og spúsa hanns,Örvar, Guðjón og svo koma Hafsteinn og spúsa þegar við erum búin að vera í eina viku
Vignir, 15.5.2007 kl. 22:37
Er Biggi ekkert með neinar spúsur með sér??
Rúna Guðfinnsdóttir, 15.5.2007 kl. 22:52
Ekki svo ég viti.....og ef að svo væri efast ég að þær væru í fleirtölu Er það ekki bannað á Íslandi? Ja, maður smyr sig......í sífellu að þessari spurningu.....ætla að hætta áður en ég fer að þvaðra eitthvað meir
Lifið heil
Vignir, 15.5.2007 kl. 22:57
Hvernig ferðu að því að gera "backgroundið" grænt hjá þér þegar þú svara commentonum?????
Rúna Guðfinnsdóttir, 15.5.2007 kl. 23:28
Ef ég nú bara vissi það..........þetta kemur bara..........kannski að þetta fylgi þemanu á síðunni, veit ekki. En ég skal láta þig vita ef að ég kemst að því hvernig á að gera þetta
Vignir, 16.5.2007 kl. 10:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.