14.5.2007 | 20:18
Silgjan góða
Keypti mér um daginn þessa forlátu silgju. Sá sem á heiðurinn af þessari snilld er sjálfur Tolli, og fyrir þá sem ekki vita hver það er það bróðir hann Bubba. Læt fylgja með mynd af dýrðinni
Mér finnst þetta mjög töff......veit samt ekki alveg hvenær ég á eftir að nota hana......Hvernig líst þér á gripinn?
Ef að þú getur ómögulega greint hvað þetta er að þá er þetta stór 1 kr.
Athugasemdir
ég skil ekki.....
Guðríður Pétursdóttir, 14.5.2007 kl. 20:31
Hvað er það sem er að vefjast fyrir þér?
Vignir, 14.5.2007 kl. 20:55
Var bróðir hans bubba að gera stóra eina krónu silgju, beltis-silgju þá?? Og hvar fannstu þetta til sölu.. Er Tolli með búð?
og afhverju keyptirðu hana og fyrir hvað mikin pening....
... þetta er svona það helsta sem er að plaga mig..
Guðríður Pétursdóttir, 14.5.2007 kl. 23:01
Ég spyr eiginlega eins og Guðríður??
Rúna Guðfinnsdóttir, 14.5.2007 kl. 23:18
Sjáið nú til mæðgur :) Þetta er fjöldaframleidd beltis silgja sem að Tolli gerir. Veit ekki til þess að hann sé með búð. Ég keypti þetta í Iðu húsinu í Rvk. Hef líka séð þetta í Eden í Hveragerði. Verðið á þessu er ekki svakalegt eða um 1900 krónur eða svo. Það er einnig hægt að fá 50 kr. og 1 eyrir. Ástæðan fyrir þessum kaupum er einfaldlega sú að mér finnst þetta flott.....
Vignir, 14.5.2007 kl. 23:52
Tolli er auðvita bara töffari
Eysteinn Skarphéðinsson, 16.5.2007 kl. 20:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.