Færsluflokkur: Matur og drykkur
30.12.2008 | 11:07
Ég bugaðist ekki...
28.8.2008 | 14:13
Kengúra og kók
Alltaf er maður að bragða eitthvað nýtt nú til dags....Fór í gær á Vegamót með vinnufélögum. Matseðilinn góður og frumlegur, rak augun í kengúruna (grilluð) sem er borin fram með udon-núðlusalati. Efins pantaði ég mér það. Við þurftum ekki að bíða lengi eftir matnum. Skammturinn var passlega mikill og framsetningin flott.
Svo var að bragða á þessu - Ég bjóst við einhverju skrýtnu en þetta er eitt það besta kjöt sem ég hef fengið! Kjötið var hæfilega grillað og mjög meyrt. Ég hugsaði mikið um hvaða kjöti þetta var líkast en ég fann ekki neitt....einstakt bragð. Gott bragð! Þessu var svo skolað niður með kóki.
Þannig að...núna hefur maður bragðað bæði kengúru og kók, og kjamma og kók