Allar glötuðu sálirnar

 

Langaði svo mikið í gær að kaupa mér geisladisk. Eftir vinnu fór ég í Skífuna og leit yfir rekkana í von um að finna eitthvað.  Það tók mig ekki langan tíma að finna disk og var nýi diskurinn með James Blunt fyrir valinu.

Í slagveðri setti ég kappann á fóninn. Fyrsta lagði á diskinum heitir 1973. Það hefur hlotið mikla spilun og er mjög vinsælt og kannast margir við það. Þessi diskur er mjög hlustendavænn, það er ekki mikið áreiti á mann, miklar trommur og heví gítarsóló. Ég þurfti ekki að skipta einu sinni um lag á leiðinni heim öll voru þau góð við fyrstu hlustun, sem er mjög gott. Mæli eindregið með þessum disk í spilarann þinn!

Blunt1


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðfinnur Þorvaldsson

Eflaust ágætis snælda, en Bluntinn er ekki alveg minn tebolli.

Guðfinnur Þorvaldsson, 19.10.2007 kl. 22:33

2 Smámynd: Vignir

En han mun verða það þegar þú heyrir þessa plötu!

Vignir, 19.10.2007 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband