Smáauglýsingar

 

Ertu með brjálaða bikkju sem þú sérð ekki frá á að ná að temja og ert á barmi þess að leiða til slátrunar? Áður en þú grípur til þeirra örþrifaráða bjallaðu þá í mig, ég gæti tjónkað við truntunni. 888-8888, Trausti Bekk.

Sárvantar einhver til að koma með mér á spilakvöld, félagsvist. Spilað er í Þingborg á þriðjudagskvöldum. Ég hef gaman af skokki og er á kafi í grískri goðafræði. Hef einnig mikinn áhuga á öllu sem tengist gróðri. Sendið mér línu á knusogkossar(hjá)koss.is

Fann á förnum vegi myndarlega og veglega lofhúfu. Hún fannst fyrir utan hús verslunarinnar síðasta sunnudag. Húfan er mjög mjúk hef ég leyft mér að kúra með hana á næturnar. Ef þú saknar loðhúfunnar þinnar hafðu þá samband í síma 555-5555. Bjarney.

Ungt par frá Tyrklandi leitar að samastað til að dvelja á meðan það er að nema Tantrafræðin. Þau eru reyklaus og róleg, fara sjaldan út á galeiðuna og biðja tvisvar sinnum á dag. Parið er reyklaust og hjartahlítt. Lofa að greiða alltaf á réttum tíma og vera ekki með neinn hamagang.  Endilega hafið samband í síma 777-7777, Hróðný

Þarf nauðsynlega á hjálp stílista að halda, allir vinir mínir skammast sín þegar þeir eru með mér og er búin að vera einhleyp í 10 ár. Nú finnst mér kominn tími til að gera eitthvað í mínum málum. Hef fengið mig fullsadda af þessu djöfuls pipri.         endilega sendið svar merkt tískuslys í Laugardalslaugina.

Ég er að reyna að koma saman sauðkind og kálfi en það gengur bara engan veginn. Búin að reyna allt! Ef einhver getur veitt mér dýrmætar upplýsingar um hvernig þetta er hægt má sá hin sama senda mér þær á sikkbastard(hjá)sikk.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband