Hvað segiru um smá fimbulfamb á sunnudegi? Og orðið er...

Þar sem ég hef ekki spilað Fimbulfamb í háaherrans tíð ákvað ég að fá bloggverja til að spila með mér! Leikreglurnar er afar einfaldar. Ég vel orð og skrifa það hér á síðuna. Þú skrifar svo hvað þú heldur að orðið þýði. Undir venjulegum kringumstæðum fengir þú ekki að sjá hvað hinir skrifa en það verður bara að hafa það! Rétta svarið mun svo birtast seinna í dag eða á morgun. Okei, ertu til?Orðið er.......

 

Biðilsbrot

 

 ps. það er harðbannað að fara í spilið og reyna að finna hið rétta svar Joyful


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

örugglega eitthvað brot í buxum sem piltur átti að hafa þegar hann biður stúlku...

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 10.2.2008 kl. 14:59

2 Smámynd: Guðrún Helga Guðmundsdóttir

þegar stúlkan neitar bónorði biðilsins ...

Guðrún Helga Guðmundsdóttir, 10.2.2008 kl. 15:17

3 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Má ég vera með?

Rúna Guðfinnsdóttir, 10.2.2008 kl. 19:21

4 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Ó ég fatta.. svolítið seinn í mér fattarinn!

Ég tel biðilsbrot vera þegar bónorði er hafnað.

Rúna Guðfinnsdóttir, 10.2.2008 kl. 19:23

5 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Nei það er eitthvað í sambandi við föt...önnur skálmin brotin upp eða eitthvað þannig.

Brynja Hjaltadóttir, 10.2.2008 kl. 21:55

6 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

sérstakur bindishnútur

Guðríður Pétursdóttir, 10.2.2008 kl. 22:59

7 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Má maður svara tvisvar??

Rúna Guðfinnsdóttir, 10.2.2008 kl. 23:20

8 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Vignir..ég er búin að gleyma hvernig á að setja myndbönd á frontinn á blogginu. Þú sendir mér einu sinni leiðbeinigar...þær eru týndar  Viltu senda nýjar á guffi85@simnet.is

Rúna Guðfinnsdóttir, 10.2.2008 kl. 23:29

9 Smámynd: Guðrún Helga Guðmundsdóttir

hmmm ... óþarfa uppbrot á buxum ...

Guðrún Helga Guðmundsdóttir, 11.2.2008 kl. 01:27

10 Smámynd: Vignir

Guðrún - Það er bara nákvæmlega rétt hjá þér! orðrétt! :o)

Vignir, 11.2.2008 kl. 08:26

11 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Glæsilegt...Kemur þá Guðrún með næsta orð..eða er leikurinn búinn?

Rúna Guðfinnsdóttir, 11.2.2008 kl. 08:34

12 Smámynd: Vignir

nýtt orð komið inn ;o)

Vignir, 11.2.2008 kl. 08:36

13 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

og hvar er það???

Rúna Guðfinnsdóttir, 11.2.2008 kl. 08:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband