Smáauglýsing

Er með til sölu algeran gullmola! ég hef ekki hugmynd um hvaða tegund þetta er en hann hefur reynst mér afskaplega vel hingað til og ekki stigið feilpúst!.....eða þangað til fyrir skemmstu. Það er leiðinda brakhljóð í öllum hurðum og svo gossaði upp fúkkalykt úr skottinu. Dótið til að taka regndropana af rúðunni er að morkna í sundur, þarf sennilega að skipta um það. Útvarpið er í hálfgerðum lamasessi - spilar bara einhverja kanadíska rás, en sennilega er þetta bara stillingarvesen hjá mér. 

Þess má geta að bíllinn sjást í 3 sekúnudur í myndinni 79 af stöðinni. Sjálfur var ég ekki við stýrið heldur mágkona mín. Ef mig minnir rétt þá lánaði ég henni bílinn til að snattast í áfengis og tóbaksverslun ríkisins. Tindavodki er minn vodki og hann drekk ég alltaf á sunnudags eftirmiðdegi.

En aftur að bílnum. Ég hef dittað að honum að einhverju leiti- en bara með límbandi af sterkustu sort. Ég hef stundum trassað olíuskipti en það hefur aldrei liðið meira en 80.000 km á milli smurninga. Fróður maður sagði mér eitt sinn að þessir bílar hefðu verið hannaðir fyrir herinn og notaðir í njósnir. Ég get ómögulega kraflað mig frammúr því að setja inn mynd af þessum gullmola, hafði það af með herkjum að hripa þessu fátæklegu auglýsingu á veraldarvefinn.

Ef þú hefur áhuga þá getur þú nálgast mig bréfleiðis eða hitt mig í eigin persónu. Heimilisfang mitt er ,,eitthvað út í bláinn,, ,,2.hæð til vinstri,, bréfalúga merkt ,,molinn,,. óskir þú eftir að hitta mig þá er best að hitta mig í mjóddinni.

 

bestu kveðjur Snjólfur. 


Velvakandi 25.11.2010

 
Getur einhver sagt mér..
hvað krulluhærði presturinn í grafarvogskirkju heitir? Hann skuldar mér pening!
-Gulli 
 
Skammist ykkar sem..
hendið út úr bifreiðum ykkar skíðlogandi og illa lyktandi eiturnöglunum ykkar! Það er nú meiri djöfulsins sóðaskapurinn sem fylgir þessari iðju og ég tala nú ekki um þau náttúruspjöll sem hljótast af þessu hirðuleysi í ykkur reykingamönnum! Fussum svei! já fussum svei! Reynið svo að hætta að reykja!
-Húsmóðir frá Suðaustur horninu.
 
Mandarínurnar í Bónus
...............eru þær ok ?
-kveðja, MandarínaLover
 
 
 

 
 

Lögregludagbók

Lögreglan í Reykjavík

22.06.2010

 

Tveir ungir menn sástu í annarlegu ástandi fyrir utan Árbæjarsafn rétt eftir miðnætti. Vegfarandi sagði þá vera að dansa undarlegan dans upp við hlið safnsins með miklum tilþrifum. Bíll nr. 2 var sendur á vettvang en tvímenningarnir voru á bak og burt. Engin skemmdarverk voru unninn á safninu og telst málinu lokið.

Kl. 02:30 barst lögreglu tilkynning um bifreið sem keyrt hefði upp á blómaker á Laugaveginum.  Ökumaðurinn, sem var stelpa á tvítugsaldri bar því við að geitungur hefði flogið inn í bílinn og hefði ekki viljað fara út, sama hversu fallega hún hefði beðið hann. Bifreiðin var talsvert skemmd og var fjarlægð með kranabíl. Það fylgdi sögunni að geitungurinn hefði stungið ökumanninn í hásinina á hægri fæti sem hefði orsakað aukna inngjöf með fyrr greindum afleiðingum. Stúlkan má búast við fjársekt.

Hálftíma síðar hringdi síminn á stöðinni. Á hinum enda linunar var íbúi við Njálsgötu að kvarta undan sértrúarsöfnuði sem hafði aðsetur í íbúðinni fyrir ofan. Taldi íbúinn að verið væri að fórna dýri. Bíll var sendur á vettvang og kom í ljós að leikhópurinn ,,Í nafni ástarinnar,, var við æfingar á nýjum leikþætti sem þau ætla að sýna í Iðnó með haustinu. Lögreglumaður bað þau vinsamlegast um að lækka róminn og halda svo æfingum áfram.

Átök brutust út í N1 ártúnsbrekku þegar tvær konur á besta aldri ætluðu sér báðar að kaupa síðustu maltdósina sem til var í búðinni. Afgreiðslumaðurinn réð ekki við aðstæður og tilkynnti atvikið. Bíll var sendur á vettvang og leikurinn skakkaður. Hvorug kvennanna lagði fram kæru. Þess má geta að vakthafandi lögreglumaður keypti sjálfur síðustu dósina svo ekki yrði gert upp á milli.

 

 


Smáauglýsingar


Lítið notaður tannbursti til sölu. Þetta er nú enginn venjulegur tannbursti skal ég ykkur segja. Enginn annar en Bob Dylan notaði hann þegar hann dvaldist á Íslandi hér um árið. Hér má sjá mynd að djásninu.
Colgate Toothbrush.jpg
Ég lagði mikið á mig til að fanga þennan dýrgrip og mun því ekki láta hann undir 10.000 kr. Ef þú hefur áhuga þá endilega hafðu samband með rafskeyti -   crazydylanfan(hjá)hotmail.com 
 
 
Auglýsi eftir leikurum í stuttmynd sem fer í töku eftir mánuð. Ég er að leita að mjög sterkum aðila sem er ófeiminn við að sleppa sér og láta eins og fífl. Viðkomandi má ekki vera hræddur við nekt, húsdýr, mjólkurafurðir, dansandi apa, stóra farsíma og liðuga asíska konu. Rétti aðilinn mun fá greitt í blíðu og 200 evrum. Hafir þú áhuga skaltu senda inn umsókn á netfangið vafasamamyndin(hjá)vafi.com
 
250 kg. einstaklingur óskar eftir heimilishjálp. Viðkomandi þarf að vera hraustur. Létt heimilisstörf og viðhald á heimili. Ekki skemmir fyrir er þú ert fyndinn og hafir mikinn áhuga á kotru. Aðeins áhugasamir sendir svar merkt  ,,Bangsalingur,,
 
Bóndi í Mývatnssveit óskar eftir að kaupa nuddborð, má vera notað. Lumir þú á slíku borði skaltu senda sms í númerið 888-nudd
 
 

Smáauglýsingar

05.03.2010

Tveggja vetra meri til sölu (er ekki að tala um húsfrúna) Slettuskjótt og með eindæmum barngóð. Íhuga skipti á skellinöðru. Svar sendist á haltahrossid(hjá)hestur.is

Er á leiðinni í sniglaræktunarbransann og vantar viðskiptafélaga í lið með mér. Ég er búinn að kynna mér þetta mjög vel og tel að það sé markaður fyrir þetta á Íslandi. Ætla að einbeita mér að Risa Afríku sniglinum til að byrja með, þeir eru heppilegir til átu jafnt sem gæludýr. Endilega hafðu samband ef þú hefur áhuga í síma 55-snail

Óska eftir einkaþjálfara til að vera með mér í ræktinni. Ég geri strangar kröfur til þín, mátt ekki reykja, ekki tala í farsíma á meðan æfingu stendur, ALLS ekki vera með jórturleður í trantinum, ekki hlusta á neina tónlist með ljótum textum, ekki stunda kynlíf kvöldinu áður, snyrtileg/ur til fara, verður að elska AHA og kunna að minnsta kosti 1 lag utanbókar, ekki fá þér í glas kvöldið fyrir æfingu, og ekki koma seint!  - Endilega vertu í bandi í síma solla(hjá)blaumkosti.is

Hef til sölu lítið ryðgaða Zetor 5711 dráttavél með einungis 25 vinnustundir að baki. Sannkallaður eðal gripur sem vert að líta á. Nýji eigandinn þarf að virða hreiðrið sem er á toppinum, Starri er búinn að koma sér vel fyrir og liggur á nokkrum eggjum. Ef þú hefur áhuga á hörku vinnugræju sendu mér þá línu. Svar merkist ,,sveita piltins draumur,,

 


Faithless - insomnia

 
Deep in the bosom of the gentle night
Is when I search for the light
Pick up my pen and start to write
I struggle, fight dark forces
In the clear moon light
Without fear... insomnia
I can't get no sleep

I used to worry, thought I was goin' mad in a hurry
Gettin' stress, makin' excess mess in darkness
No electricity, something's all over me, greasy
Insomnia please release me and let me dream of
Makin' mad love to my girl on the heath
Tearin' off tights with my teeth
But there's no release, no peace
I toss and turn without cease
Like a curse, open my eyes and rise like yeast
At least a couple of weeks
Since I last slept, kept takin' sleepers
But now I keep myself pepped
Deeper still, that night I write by candle light
I find insight, fundamental movement, uh
So when it's back this insomniac take an original tack
Keep the beast in my nature under ceaseless attack
I gets no sleep
I can't get no sleep

I can't get no sleep
I can't get no sleep
I need to sleep, although I get no sleep
I need to sleep, although I get no sleep


Lögregludagbók

Lögreglan í Þorlákshöfn

03.02.2010

 Vaktaskiptin voru brösugleg í morgun. Flóki varðstjóri hafði sofnað á kontórnum og læsti að sér. Allir sem þekkja Flóka vita að hann sefur eins og steinn. Á endanum hafðist þó að fá hann til að vakna. Tautandi í bringuna fór hann beinustu leið heim - í fylgd bíls númer 2. Við vaktinni tóku Brjánn og Teitur.

Laust eftir 9 barst tilkynning frá Fagus um innbrot. Brjánn tók málið að sér og fór á vettvang. Í ljós kom að eitthvað af peningum var stolið, einnig talsvert af timbri. Innbrotsþjófurinn skildi eftir hálf reyktan vindling, sigti, hálfan íslenska fánann, ljóðabók, nælonsokk og zippokveikjara sem á stóð ,,viva la revolution,, Málið er í rannsókn hjá lögreglu.

Annað innbrot var tilkynnt klukkutíma síðar eða rúmlega 10 af umsjónarmanni félagsmiðstöðvarinnar Svítan. Engu hafði verið stolið en innbrotsþjófurinn hafði hægt sér í blómapott og drukkið úr þremur hálfs líters kóka kóla flöskum og borðað þrjú mars stykki. Engar öryggismyndavélar eru til staðar og lýsir lögregla eftir vitnum.

í hádeginu var flatbaka pöntuð frá sjoppunni og rennt niður með svalandi gosdrykk. Vaktmenn voru á sama máli um þetta hefði verið hinn besti biti.

Tíðindalaust var bróðurpart dags eða þangað til laust eftir 20:00 að tilkynning barst frá hafnarverði að nokkrir piltar væru að þenja vélfáka sína og reykspóla í hringi. Teitur fór að höfninni og veitti ungu drengjunum tiltal og sagði þá vera að sýna vítavert gáleysi með þessu háttalagi. Vélfákarnir voru gerðir upptækir. Að auki fengu drengirnir að þrífa lögreglubílinn í refsingu. Þeir lofuðu hátíðlega að þetta skyldu þeir aldrei aldrei aftur gera.

 Fleira taldist ekki til tíðinda þann daginn.

 


Smáauglýsingar

 
Saumaklúbbur í breiðholtinu óskar eftir nafni á klúbbinn. Vegleg verðlaun eru í boði en þau er heitur brauðréttur að hætti Hugrúnar. Við viljum ekki klisjunöfn eins og : saumspretturnar,  fingurbjargirnar, prjónasystur, lopagellurnar eða Tvinnakeflin.  Tillögur sendist á netfangið   saumo@saumur.is  
 
Nennir einhver að kenna mér að búa til páskaegg? Hjálparkokkurinn verður að útvega eftirfarandi; súkkulaði og nammi. - á engan pening.....get ekki borgað fyrir hjálpina. Svör sendist á netfangið: onebrokebitch@hotmail.com  kveðja Petrína.
 
Er að leita að afar sérstökum áfelgum. Sá þær á bíl fyrir vestan síðasta sumar. Þær eru 5 arma með stórum teningi í miðjunni. Ef þú lumar á þessum dýrgrip þá máttu endilega senda mér sms í númerið 88-vírdó.
 
Kökugerðameistari óskar eftir að ráða nema. Kröfur eru eftirfarandi;  má ekki éta deig, snyrtimennska í fyrirrúmi, stundvísi, hatur á Davíð Oddssyni,  óstjórnlega ást á súkkulaði og fima stöðuga fingur.
umsókn sendist á  donabakarinni@bakstur.is
 
 
 
 


ör-fréttir


- Ný stirnið Susan Boyle mun troða upp á þorrablóti stokkseyringa næstkomandi laugardag.
,,ég hlakka mikið til að koma til Íslands, sagði Susan í viðtali við The Sunday Times. 
 
-  Nýjasta afurð Mjólkursamsölunnar, svínamjólk, fór ekki vel íslenska landsliðið í krullu - ,,alger viðurstyggð, og alveg ódrekkandi,,  ,,væri frekar til í að drekka skólp heldur en þennan hroða,,  - voru aðeins fá af þeim dómum sem þessi all sérstaka afurð fékk. Talsmaður Mjólkursamsölunnar vildi ekki tjá sig um málið þegar fréttastofa hafði samband.
 
- Dans fár hefur komið upp hjá vistmönnum Hrafnistu. Polkadansarinn Otto Von Holl mun verða með vinnustofu þann 10.febrúar þar sem hann mun sína nokkur vel valin spor.
 
- Sænski bílaframleiðandinn Saab hefur hafið framleiðslu á fyrsta loftknúna bílnum.  Verkfræðingur Saab er afar stoltur af nýja bílnum og segir meðal annars að hægt sé að nota allar lofttegundir til að knýja bílinn áfram. Sérhannaður dósahaldari er í bílnum þar sem meðal annar er hægt að geyma dós af bökuðum baunum.
 
- Eigandi minkabúsins á Vopnafyrði var fyrir aðkasti frá ungum PETA meðlimum þegar hann var á rölti um á bryggjunni. Meðlimir PETA köstuðu í hann öllu lauslegu sem þau komust í tæri við. Eigandinn (sem ekki vill láta nafn síns getið) hlaut aðeins skeinu á kinn og lét gera að sárum sínum á heilsugæslunni. Hann hyggst ekki kæra verknaðinn.
 

183


Eldri borgari handtekinn fyrir
að selja hákarl á skólalóð
en missir ekki móð
heldur áfram að selja
til að eiga í sig og á
 
í herbergi á Flókagötu
kúldrast í kulda
miðstöðin biluð.
 
Kjötsúpan á vistheimilinu
bragðast eins og
súrt vatn
óæt.
 
Engin skyldmenni vitja
 
 

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband